Öll verkin þín á einum stað

Prjónadagbókin mín

Prjónadagbókin mín er nokkurs konar verkdagbók og í hana skráir þú, á persónulegan hátt, prjónaverkin þín. Þannig verður til skemmtileg og falleg bók sem er í senn minningabók um þau verk sem þú hefur prjónað og  uppflettibók með hagnýtum upplýsingum um verkin þegar þú þarft á þeim að halda.

Prjónadagbókin er algjörlega tímalaus og því skiptir engu máli hvort þú afkastar gríðarlega miklu eða prjónar hægt og örugglega – bókin hentar öllum.

Um okkur

Að útgáfunni stöndum við tvær, Bylgja Borgþórsdóttir og Esther Ösp Gunnarsdóttir, en við höfum undanfarin ár hannað og gefið út uppskriftir að prjónaflíkum á börn undir heitinu Big Red Balloon.

Við vitum að þau sem prjóna mikið gefa gjarnan stóran hluta af sínu prjónlesi frá sér án þess að skrá niður helstu upplýsingar. Þannig glatast oft mikilvæg gögn um þau verk sem unnin eru og erfitt að grafa upp þegar ráðast á í sama eða svipað verk.

Okkur langaði því að búa til og gefa út bók þar sem viðkomandi getur safnað saman upplýsingum um öll sín prjónaverk á einn stað. Bókin virkar þá sem eins konar verkbókhald þar sem nauðsynlegar upplýsingar um verkið eru skráðar ásamt mynd.

 

Aðstoð?

Þarftu frekari aðstoð og leiðbeiningar til að geta keypt bókina? Sendu okkur póst á netfangið bigredballoonknitting@gmail.com og við hjálpum þér.

Uppskriftir

Haustlauf

Peysa og húfa með laufamynstri.
Garn: Kambgarn.
Stærðir: 0-8 ára.

Flóki

Peysa með kaðli.
Garn: Léttlopi.
Stærðir: 2-8 ára.

Þúfur

Húfa og vettlingar með bólumynstri.
Garn: Kambgarn.
Stærðir: 0-8 ára.

Bugða

Húfa með skemmtilegu þrívíðu mynstri. 
Garn: Kambgarn.
Stærðir: 1-10 ára.

Frábær gjöf

Prjónadagbókin mín er tilvalin í jóla- og afmælispakkann handa hannyrðafólki. 

Greiðslumöguleikar

Viltu frekar greiða með millifærslu? Ekker mál. Sendu okkur línu.

Heilsubót

Prjónaskapur dregur úr streitu, lækkar blóðþrýsting og eykur einbeitingu.

Hafðu samband

bigredballoonknitting@gmail.com

Skilmálar & persónuvernd